vá hvað ég er fegin að ég tók ekki vaktavinnunni sem mér var boðið, kom óvænt uppá í dag að ég var spurð hvort að ég væri til í að vinna áfram til hálf 8, gerði það, ekki smá dauðþreytt eftir 12 tíma í 50-60 gráður hita, enda var sturtan góð á eftir

ég missti 3 kíló bara að vinna á fimmtudaginn og föstudaginn í kranaverkstæðinu í bilaðri loftræstingu, sem ég var að gera við, inní krana í 40 stiga hita, þvílíkt puð. labba líka marga kílómetra á dag auk þess að hjóla líka.og borða salat í hádeginu.... not bad

held að ég verði látin vera áfram á kranaverkstæðinu, er að standa mig svo vel þar, frantz sem er þar yfir virðist rosa hrifinn hvað ég er klár

*mont*
annars er mórallinn í vinnunni frábær, alveg frábærir strákar og kallar að vinna þar, það er enginn leiðinlegur, 25 rafvirkjar núna, og enginn leiðinlegur, það er bara heppni. ekki var það þannig með sjálftæðisliðinu ´hjá landsneti og snobbinu í rafsól.
annars er mjög líklegt að við fáum aðra kisu

stelpa sem ég þekki á vinkonu sem á hreinræktaðan skógarkött sem er rosa falleg og varð óvart kettlingafull af venjulegur íslenskum skógarketti og ég og bjarni vorum búin að pæla að fá okkur aðra kisu aðallega fyrir hiro því hann er svoldið einmanna, sérstaklega eftir að besta vinkona hans sem kom stundum í heimsókn til okkar í skúrinn er notttla ekki lengur til staðar.
en hérna er mynd af mömmunni, kettlingarnir fæðast í kringum 20 maí og þá eru 2 ma´nuðir í krílið.
http://dadi.info/dyraspjall/viewtopic.php?p=34644&highlight=&sid=b0b0503894782ad86b1ccd8573179e15pabbinn er annað hvort kolsvartur eða grábröndóttur, kettlingarnir ættu allavega að vera skemmtileg útkoma

kveðja Elín